Íbúð í Las Filipinas - no Palmera Mark
Íbúð í Las Filipinas - no Palmera MarkUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 mánuður
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Orihuela Costa
Hugguleg íbúð til orlofsleigu í Villamartin. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Í öðru svefnherberginu er hjónarúm en í hinu 2 einstaklingsrúm. Annað baðherbergið er inn af aðal svefnherberginu. Útgengt er á rúmgóðar svalir bæði úr stofu og svefnherbergi en einnig fylgir íbúðinni sólþak þar sem titlvalið er að njóta sólarinnar. Loftkæling er í íbúðinni. Húsið er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegris sundlaug, tennisvelli og leiksvæði fyrir börnin. Bílastæði fylgir íbúðinni, innan kjarnans.
Íbúðin er staðsett á rólegu svæði í Las Filipinas. Það eru einhverjir veitingastaðir og barir í næsta nágrenni og það er lítil matvöruverslun í ca 15-20 mínúnta göngufæri. Við mælum þó með að fólk sé með bíl á þessari staðsetningu. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í ca 10 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í boði í nágrenninu en Greenland minigolf völlurinn er í göngufæri við kjarnann. Einnig eru góðir golfvellir í næsta nágrenni en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Ramblas og Las Colinas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-940 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu