Íbúð - Orlofsleiga - La Zenia

Falleg íbúð til orlofsleigu á besta stað í La Zenia. Íbúðin sem er á jarðhæð, samanstendur af 2 rúmgóðum svefnherbergjum, 1 baðherbergi, eldhúsi og stofu/borðstofu. Í öðru herberginu er hjónarúm, en í hinu eru 2 einstaklingsrúm. Úr stofunni er útgengt á verönd sem snýr í vestur og út í sundlaugagarðinn en þar hefur þú sólina seinni partinn. Einnig er útgengt á aðra verönd sem snýr í austur, þar sem þú hefur morgunsólina. Íbúðin er staðsett í lítilli, rólegri götu í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að góðum garði með sameiginlegri sundlaug. Loftkæling er í íbúðinni.

Staðsetningin er mjög góð en kjarninn er staðsettur við La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina vinsælu, þar sem finna má yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Colinas og Las Ramblas.

Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!