Íbúð í Funchal - no Miramar
Íbúð í Funchal - no Miramar- 2 svefnherbergi
- 2 baðherbergi
Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 8 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Funchal, Madeira
Notaleg íbúð til orlofsleigu í Funchal, Madeira. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á fínar svalir þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í góðu lyftuhúsi þar sem er lokaður garður með sameiginlegri sundlaug. Í stofunni er sjónvarp með aðgang að 130 stöðvum. Loftkæling er í íbúðinni og bílastæði fylgir.
Staðsetningin er mjög góð en íbúðin er staðsett í Funchal sem er höfuðborg Madeira. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en allt er þetta í göngufæri við húsið. Umhverfið er virkilega fallegt og eru gönguleiðir um allt en td er hafnarsvæðið í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð. Ýmiskonar afþreying er allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi hvort sem fólk kýs að vera í borginni eða skoða alla fallegu bæina í kring.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólaramegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu