Íbúð í Funchal, Madeira - no Regency Cliff
Íbúð í Funchal, Madeira - no Regency CliffUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 1
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Madeira
Falleg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í borginni Funchal í Madeira. Íbúðin sem er í góðu lyftuhúsi, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar svalir með frábæru útsýni beint út á Atlantshafið. Íbúðin er í góðum lokuðum kjarna, rétt við sjóinn en í garðinum hafa íbúar aðgang að sameiginlegri sundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu. Loftkæling er í íbúðinni og bílastæði fylgir.
Staðsetningin er frábær, en þetta svæði í Funchal er mjög vinsælt meðal ferðamanna. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en fjjöldi veitingastaða er allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Funchal er höfuðborgin og sú stærsta á eyjunni Madeira. Borgin er þekkt fyrir náttúrufegurð, milt veðurfar allt árið um kring og einstaka menningarsögu. Borgin er byggð upp í móti og er einstaklega fallegt útsýni yfir Atlantshafið. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring, en þar sem eyjan er lítil tekur ekki langan tíma að keyra á milli bæja. Góðar gönguleiðir eru um eyjuna, bæði fyrir byrjendur sem og lengra komna þar sem stórbrotin náttúran fær að njóta sín. Borgin er friðsæl og róleg þrátt fyrir að vera iðandi af lífi!
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu