Íbúð í Funchal, Madeira - no Palheiro Village 3
Íbúð í Funchal, Madeira - no Palheiro Village 3Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 12 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 1
- Baðherbergi: 1
- Stærð: 95 m²
Lýsing
-
Lýsing: Sjá fulla lýsingu
Íbúð - Orlofsleiga - Madeira
Virkilega falleg íbúð til orlofsleigu í Funchal á Madeira. Íbúðin sem er 95m2, samanstendur af 1 svefnherbergi, 1 baðherbergi, eldhúsi og stofu/borðstofu. Í stofunni er arinn sem er notalegt að kveikja upp í á köldum vetrarkvöldum. Í svefnherberginu er loftkæling en úr því er útgengt á svalir. Í baðherberginu er hiti í gólfum. Úr stofunni er einnig útgengt á svalir með stórtkostlegu útsýni yfir hafnarsvæðið í Funchal. Íbúðin er staðsett í lúxuskjarnanum Palheiro Village en íbúar hafa aðgang að bæði inni- og útisundlaug og góðri sólbaðsaðstöðu við laugina. Einnig er þarna líkamsrækt, spa og sauna.
Staðsetningin er mjög góð en Palheiro Village svæðið er í útjaðri höfuðborgarinnar Funchal svo að þeir sem þar dvelja hafa bæði rólegheitin en eru þó innan borgarinnar svo stutt er í meira líf og fjör. Á svæðinu er golfvöllur þar sem er klúbbhús, en þar er virkilega góður veitingastaður. Aðeins lengra í burtu eru verslanir, veitingastaðir og barir.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!