Íbúð í Funchal, Madeira - no America

Íbúð í Funchal, Madeira - no America
1 svefnherbergi
1 baðherbergi

Upplýsingar

Lýsing

  • Lýsing:

    Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Madeira

    Glæsileg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Funchal, Madeira. Íbúðin samanstendur af 1 svefnherbergi, 1 baðherbergi, litlu eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á svalir þar sem tilvalið er að drekka í sig sólina og jafnvel njóta góðrar máltíðar. Af svölunum er útsýni yfir Cabo Girao og sjóinn. Bílastæði fylgir íbúðinni sem hentar vel fyrir þá sem kjósa að vera á bílaleigubíl.

    Staðsetningin er frábær en íbúðin er staðsett á einu vinsælasta ferðamannasvæðinu í Funchal. Stutt er í ströndina, verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu en Forum Madeira verslunarmiðstöðin er skammt undan. Praia Formosa ströndin er í aðeins 2 km fjarlægð. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og eru fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.

    Möguleiki er á að fá ferð til og frá flugvelli í íbúð sé þess óskað gegn gjaldi.

    Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!

     

    Sjá fulla lýsingu

Staður

Eiginleikar og Þægindi

Share this property

Copy

Eða deila með:

Powered by Estatik

Reset password

Enter your email address and we will send you a link to change your password.

Get started with your account

to save your favourite homes and more

Get started with your account

to save your favourite homes and more

By clicking the «SIGN UP» button you agree to the Terms of Use and Privacy Policy
Powered by Estatik