Íbúð í Flamenca Village - no 10
Íbúð í Flamenca Village - no 10Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 4 ár
- Flokkur: Skammtímaleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
- Hæðir: 2
- Byggingarár: Nýbygging
Lýsing
-
Lýsing:
Ný íbúð í hinum vinsæla íbúðakjarna Flamenca Village sem er virkilega vel staðsettur á Playa Flamenca. Íbúðin sem er á 2 hæðum samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi, stofu þar sem er svefnsófi og svo borðstofu. Úr stofunni sem er á neðri hæð er útgengt á svalir en af efri hæðinni er útgengt á gott sólþak. Af svölunum er útsýni yfir sameiginlegan sundlaugagarð. Útihúsgögn eru bæði á svölum og sólþaki. Í íbúðinni er WiFi og loftkæling og er lyfta í húsinu.
Í Flamenca Village sem er nýr íbúðakjarni hafa íbúar aðgang að fallegum garði með sameiginlegum sundlaugum, sundlaugabar, nuddpotti og líkamsrækt. Mjög gott svæði er í garðinum til þess að liggja og njóta sólarinnar. Virkilega vel staðsettur íbúðakjarni sem hefur allt til alls!
Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Td er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin í aðeins 700m fjarlægð en þar finnur þú allt til alls. Í aðeins 600m fjarlægð er að finna fallegar strendur, bæði Playa Flamenca og La Zenia ströndina en einnig eru góðir golfvellir skammt undan.
Íbúðin leigist í skammtímaleigu. Vinsamlegast hafið samband fyrir laus tímabil og verð.
Sjá fulla lýsingu