Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Campoamor
Falleg íbúð til sölu í Campoamor. Íbúðin sem er 101m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á ágætis 11m2 svalir. Íbúðin er staðsett í lyftuhúsi þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug, líkamsrækt og sólþaki þar sem tilvalið er að baða sig í sólinni. Bílastæði fylgir íbúðinni.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Næsta strönd er í 1 km fjarlægð. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Campoamor, Villamartin, Las Ramblas og Las Colinas. Öflugt Íslendingafélag er á svæðinu en þau reka félagsheimili þar sem reglulega eru ýmsir viðburðir og hittingar.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu