Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Campoamor
Falleg íbúð til sölu í Campoamor. Íbúðin sem er 104m2, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er úr stofunni á góðar 19m2 svalir þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í góðum, lokuððum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug, líkamsrækt og sólþaki. Bílastæði fylgir íbúðinni innan kjarnans.
Staðsetningin er góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Dehesa de Campoamor er svæði sem er staðsett í ca 15-20 mínútna akstursfjarlæð, suður af Torrevieja. Svæðið er þekkt fyrir milt veðurfar og fallegar strendur. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góður golfvöllur er í Campoamor en einnig eru fleiri í næsta nágrenni og má þar nefna Villamartin Golf, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu