Íbúð á jarðhæð í Aquamarina - no A2210

Íbúð á jarðhæð í Aquamarina - no A2210
2 svefnherbergi
1 baðherbergi
70
650€

Upplýsingar

Lýsing

  • Lýsing:

    Falleg íbúð á jarðhæð sem leigist frá september - júlí. Íbúðin er staðsett í Aquamarina og samanstendur af 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr eldhúsi er útgengt á bakverönd en fyrir framan íbúðina er verönd og lokaður garður. Íbúðin er staðsett í einum af bestu íbúðakjörnunum á svæðinu en í sameiginlegum garði hafa íbúar aðgang að tennisvelli, grillaðstöðu, sameiginlegri sundlaug og nuddpotti.

    Staðsetningin er góð er stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð en þar er fjöldinn allur af verslunum og veitingastöðum og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Það eru 3 góðir golfvellir í 10 mínútna akstursfjarlægð og er Alicante flugvöllur í ca 40 mínútna fjarlægð.

    Leiguverð er 650 evrur á mánuði í skammtíma- og vetrarleigu sé leigutímabil 2 mánuðir eða meira. Ef íbúðin er tekin í orlofsleigu er leiguverð 500 evrur á viku.

     

    ATH - Staðsetning á korti er ekki nákvæm en gefur mynd af því á hvaða svæði íbúðin er

    Sjá fulla lýsingu

Staður

Share this property

Copy

Eða deila með:

Powered by Estatik

Reset password

Enter your email address and we will send you a link to change your password.

Get started with your account

to save your favourite homes and more

Get started with your account

to save your favourite homes and more

By clicking the «SIGN UP» button you agree to the Terms of Use and Privacy Policy
Powered by Estatik