Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Mikið endurnýjuð og virkilega falleg íbúð til sölu í Albir. Íbúðin sem er 75m2 samanstendur af 1 svefnherbergi, 1 baðherbergi, eldhúsi og stofu/borðstofu. Íbúðin er virkilega björt og falleg. Í stofunni eru stórir rafdrifnir gluggahlerar og er hiti í gólfum. Íbúðin er staðsett í 5 hæða lyftuhúsi í virkilega góðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegum garði með sundlaug, leiksvæði og tennisvelli. Bílastæði í bílageymslu fylgir sem og geymsla.
Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Albir er lítill bær sem er staðsettur á milli Benidorm og Altea. Kosturinn við Albir er að þar er allt til alls en samt er bærinn rólegur og tilvalinn fyrir fjölskyldufólk. Fyrir þá sem eru að leita að meira fjöri, þá er stutt til Benidorm.
Sjá fulla lýsingu