Íbúð í Torrevieja - no AL127
Íbúð í Torrevieja - no AL127Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 3 ár
- Flokkur: Skammtímaleiga
- Tegund: Íbúð, Jarðhæð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
- Stærð: 74 m²
- Byggingarár: 2021
Lýsing
-
Lýsing:
Falleg íbúð á jarðhæð í góðum íbúðakjarna í Torrevieja. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stórri stofu/borðstofu. Í öðru svefnherberginu er hjónarúm en í hinu eru tvö einstaklingsrúm. Í stofunni sem er mjög rúmgóð, er þægilegur 3 sæta sófi og hægindastóll og í borðstofunni er borð og stólar fyrir 4 manneskjur. Útgengt er á góða verönd bæði fyrir framan og aftan íbúðina en önnur veröndin snýr út í sameiginlegan sundlaugargarð sem er virkilega fallegur. Í íbúðinni er WiFi og loftkæling bæði fyrir heitt og kalt. Bílastæði fylgir í kjallara.
Íbúðin er í góðum kjarna sem er vel staðsettur en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Aðeins 3 km eru í næstu strönd.
- Vinsamlegast hafið samband fyrir laus tímabil og verð -
Sjá fulla lýsingu