Íbúð á Benidorm - no RS2610
Íbúð á Benidorm - no RS2610Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 ár
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 1
- Baðherbergi: 1
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Benidorm
Virkilega falleg íbúð til orlofsleigu á Benidorm. Íbúðin samanstendur af 1 svefnherbergi, 1 baðherbergi, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á góðar svalir með virkilega góðu útsýni yfir sameiginlegan sundlaugagarð. Íbúðin er á 8.hæð. Húsið er staðsett í góðum lokuðum kjarna með stórum garði þar sem íbúar hafa aðgang að sundlaug, leiksvæði fyrir börnin og tennisvelli. Innan kjarnans er einnig lítill bar þar sem hægt er að fá sér kaffibolla eða kæla sig niður með drykk. Loftkæling er í svefnherbergi en viftur í loftum í öðrum rýmum.
Staðsetningin er mjög góð en íbúðin er um 400m frá Poniente ströndinni á Benidorm en þar má finna fjöldann allan af verslunum, veitingastöðum og börum. Gamli bærinn á Benidorm er í ca 1km fjarlægð.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu