Íbúð á Benidorm - no Benidorm Veronica
Íbúð á Benidorm - no Benidorm VeronicaUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 vikur
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 1
- Stærð: 54 m²
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Benidorm
Virkilega hugguleg íbúð til orlofsleigu við Poniente ströndina á Benidorm. Íbúðin sem er 54m2, samanstendur af 2 rúmgóðum svefnherbergjum, 1 baðherbergi, fullbúnu eldhúsi og bjartri stofu/borðstofu. Útgengt er á svalir sem er hægt að loka alveg svo í raun eru þær framlenging á íbúðinni og þar er tilvalið að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er mjög góð en svæðið er rólegt þó að stutt sé í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Kjarninn er staðsettur rétt ofan við Poniente ströndina þar sem allt iðar af mannlífi og þar er fjöldi veitingastaða til að velja úr. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu