Parhús í Playa Flamenca - no LAC644
Parhús í Playa Flamenca - no LAC644Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 ár
- Flokkur: Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Parhús
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Parhús - Vetrarleiga - Playa Flamenca
Huggulegt parhús (fjarkahús) til leigu í Playa Flamenca. Húsið sem er á 2 hæðum samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, fullbúnu eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr svefnherbergi á efri hæð er útgengt á góðar svalir. Úr stofunni er útgengt í fína sólstofu en einnig er ágætis verönd fyrir framan húsið þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar en einnig er bílastæði við húsið. Loftkæling er í húsinu.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Svæðið er mjög vinsælt meðal íslendinga og er öflugt íslendingafélag á svæðinu og reglulegir hittingar og viðburðir á vegum þess sem við getum veitt nánari upplýsingar um sé þess óskað. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er skammt undan en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Einnig er ýmiskonar afþreying á svæðinu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin, Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas.
ATH - Staðsetning á korti er ekki nákvæm en gefur mynd af því á hvaða svæði húsið er
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífínu!
Sjá fulla lýsingu