Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Fjarkahús - Til sölu - Punta Prima
Gott fjarkahús til sölu á góðum stað í Punta Prima. Húsið sem er á 2 hæðum, er 84m2 og samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er úr stofunni á góða verönd en einnig er útgengt á svalir af efri hæð og upp á sólþak, svo að nóg pláss er til að baða sig í sólinni. Við húsið er lokaður flísalagður garður og pláss til að leggja bíl innan girðingar. Húsið er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en þar má nefna Las Ramblas, Las Colinas, Villamartin Golf og Campoamor Golf. Stórt samfélag Íslendinga er á svæðinu og standa Íslendingafélagið og Félag húseigenda á Spáni reglulega fyrir viðburðum og hittingum.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu