Einbýlishús í La Marina - no 123

Einbýlishús í La Marina - no 123
6 svefnherbergi
6 baðherbergi
600.000€

Upplýsingar

  • Bætt við: Fyrir 4 ár
  • Flokkur:
  • Tegund:
  • Svefnherbergi: 6
  • Baðherbergi: 6

Lýsing

  • Lýsing:

    Falleg eign í La Marina með mikla möguleika. Eignin samanstendur af 2 húsum svo þetta er góður kostur fyrir tvær fjölskyldur sem vilja flytja saman í sólina eða jafnvel hægt að leigja annað húsið út.

    Í stærra húsinu eru 4 svefnherbergi og 4 baðhergi en í gestahúsinu eru 2 svefnherbergi og 1 baðherbergi. Húsin eru bæði með vönduðum innréttingum og gólfefnum og er loftkæling í öllum rýmum í báðum húsum. Við stærra húsið er sólskáli sem hefur mikla möguleika en er til að mynda nýttur sem borðstofa. Stór, fallegur og gróðursæll garður er við húsin en þar eru m.a. há og falleg pálmatré. Í garðinum er 12m sundlaug en þar er búningsklefi með klósetti og sturtu. Gott útieldhús/grillaðstaða er í garðinum og einnig bar. Algjör draumur að geta rölt út í garð og notið sólarinnar með þessa lúxusaðstöðu!

    Eignin er í afgirtum garði með rafmagnshliði en öryggiskerfi er í húsunum sem er beintengt við lögregluna. Gott aðgengi er að eigninni og er hjólastólaaðgengi í bæði hús og öll rými.

    Það er aðeins 5 mínútna akstur í verslanir, veitingastaði og strendur en ca 20 mínútna gangur. Alicante flugvöllur er í ca 23 mínútna akstursfjarlægð og Murcia í 46 mínútna akstursfjarlægð.

    Ath! Staðsetning á korti er ekki nákvæm og gefur aðeins mynd af því á hvaða svæði eignin er.

     

    Sjá fulla lýsingu

Staður

Share this property

Copy

Eða deila með:

Powered by Estatik

Reset password

Enter your email address and we will send you a link to change your password.

Get started with your account

to save your favourite homes and more

Get started with your account

to save your favourite homes and more

By clicking the «SIGN UP» button you agree to the Terms of Use and Privacy Policy
Powered by Estatik