Einbýlishús í Torrevieja - no LP Casa Torre
Einbýlishús í Torrevieja - no LP Casa TorreUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 6 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Einbýli
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Einbýlishús - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Torrevieja
Einbýlishús til orlofs- eða vetrarleigu í Torrevieja. Húsið sem er mjög rúmgott, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, fullbúnu eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu. Húsið rúmar vel 6 manns. Útgengt er í stóran, afgirtan garð og einnig er rúmgott sólþak með virkilega fallegu útsýni en þar er tilvalið að baða sig í sólinni. Bílastæði er við húsið. Húsið er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Stutt er í ströndina sem er í göngufæri en ýmis önnur afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
ATH - Staðsetning á korti er ekki nákvæm en gefur aðeins mynd af því á hvaða svæði húsið er
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: