Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Einbýlishús - Til sölu - PAU 8
Nýtt og glæsilegt einbýlishús í PAU 8 hverfinu. Húsið sem er á einni hæð er 89m2 og samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Húsið stendur á 200m2 lóð, en við húsið er flísalagður garður með einkasundlaug. Við hlið hússins er stigi upp á rúmgott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar.
Staðsetningin er góð en öll þjónusta er í stuttri akstursfjarlæð en mælt er með að vera með bíl á þessu svæði. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í ca 10 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í nágrenninu og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin, Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu