Einbýlishús í Los Balcones, Torrevieja - no Laguna Beach
Einbýlishús í Los Balcones, Torrevieja - no Laguna BeachUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Einbýli
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 3
Lýsing
-
Lýsing:
Einbýlishús - Orlofsleiga - Los Balcones
Sannkölluð lúxusvilla í Los Balcones, Torrevieja. Húsið samanstendur af íbúð en svo er búið að innrétta gestaíbúð í kjallaranum. Í aðal íbúðinni eru 2 svefnherbergi, 2 baðherbergi (annað inn af svefnherbergi), fullbúnu eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á tvennar svalir og einnig upp á frábært sólþak þar sem er útisturta, sólbekkir og virkilega fallegt útsýni. Úr stofunni er útgengt í huggulegan garð með einkasundlaug og grillaðstöðu þar sem tilvalið er að njóta samveru í sólinni. Í kjallaranum er búið að innrétta gestaíbúð með eldhús- og þvottaaðstöðu, lítilli stofu og tvöföldu rúmi.
Staðsetningin er góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin Golf og Campoamor Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu