Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Einbýlishús - Til sölu - Las Filipinas
Nýtt og glæsilegt einbýlishús til sölu í Las Filipinas. Húsið sem er 116m2, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, opnu eldhúsi og bjartri stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt í lokaðan, flísalagðan garð þar sem er einkasundlaug. Úr svefnherbergjum á efri hæð er útgengt á ágætis svalir en einnig er stigi upp á rúmgott sólþak. Bílastæði er við húsið.
Staðsetningin er góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari en þó mælum við með að vera á bíl á þessu svæði. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er í ca 10 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu