Einbýlishús í Funchal - no Palheiro Village
Einbýlishús í Funchal - no Palheiro VillageUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 12 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Einbýli
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Einbýlishús - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Funchal
Virkilega glæsilegt einbýlishús til orlofsleigu í Funchal, Madeira. Húsið er virkilega rúmgott og bjart, en það samanstendur af 3 rúmgóðum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum (öðru þeirra inn af hjónaherberginu), eldhúsi og stofu/borðstofu. Gluggarnir eru stórir og hleypa birtunni vel inn svo að húsið er bjart og fallegt. FalleHúsið er staðsett í lokuðum og öruggum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug. Útgengt er á verönd en einnig er garður við húsið þar sem er nuddpottur. Stórkostlegt útsýni er frá húsinu niður að höfninni í Funchal.
Staðsetningin er frábær en Palheiro Village kjarninn er lúxuskjarni sem stendur á rólegum stað þrátt fyrir að vera í höfuðborginni. Þetta hentar því vel þeim sem vilja náttúrufegurð og rólegheit en vera samt nálægt allri þjónustu og meira lífi. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari og er ýmiskonar afþreying í boði allt um kring en allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Þægindi:
- Eiginleikar: