Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Þakíbúð - Til sölu - Villamartin
Virkilega falleg ný íbúð til sölu í Villamartin. Íbúðin sem er 90m2 samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunn og svefnherbergi er útgengt á 20m2 svalir en einnig fylgir íbúðinni 80m2 sólþak þar sem tilvalið er að baða sig í sólinni en þaðan er fallegt útsýni, að sjónum. Íbúðin er staðsett í lyftuhúsi í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Stutt er í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina vinsælu þar sem finna má yfir 200 verslanir og veitingastaði. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en fyrir utan Villamartin Golf eru Campoamor Golf, Las Ramblas og Las Colinas skammt undan.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu