Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Villamartin
Glæsileg ný íbúð í Villamartin til sölu. Um er að ræða 92m2 þakíbúð sem samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt á góðar 46m2 svalir sem snúa út í sameiginlegan sundlaugagarð. Í húsinu eru 11 íbúðir og kjallari þar sem er bílageymsla og einnig geymslur sem fylgja íbúðunum.
Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, vetingastaði og bari en það er allt í göngufæri. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring en til að mynda er Íslendingafélag á svæðinu sem er mjög virkt og er alltaf eitthvað skemmtilegt um að vera hjá þeim. Sutt er í góða golfvelli en næstur er Villamartin Golf en hann er bara rétt hjá. Lengra í burtu eru svo Campoamor golf, Las Ramblas og Las Colinas. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er skammt undan en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Fyrir frekari upplýsingar um eiginina - verið i sambandi í gegnum [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl.
Sjá fulla lýsingu