Íbúð í Playa Flamenca - no LAC637
Íbúð í Playa Flamenca - no LAC637Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 3 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Playa Flamenca
Íbúð í Playa Flamenca til orlofs- eða skammtímaleigu. Íbúðin samanstendur af 2 svefnbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á svalir sem snúa út í sameiginlegan sundlaugagarð. Í öðru svefnherberginu er hjónarúm en í hinum eru 2 einstaklingsrúm. Loftkæling er í íbúðinni.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Playa Flamenca Commercial Center er í aðeins 5 mínútna göngufæri en þar eru veitingastaðir, barir og verslanir. Aðeins 10 mínútna gangur er í laugardagsmarkaðinn vinsæla og er La Zenia Boulevard verslunarkjarninn skammt undan. Þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í nágrenninu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Stutt er í góða golfvelli en þar má nefna Villamartin golf, Campoamor, Las Ramblas og Las Colinas. Það tekur ca 5 mínútur að keyra á La Zenia ströndina.
Vinsamlegast hafið samband fyrir laus tímabil og verð
Sjá fulla lýsingu