Einbýlishús í Campoamor - no Jardín Mark
Einbýlishús í Campoamor - no Jardín MarkUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 mánuður
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Einbýli
- Svefnherbergi: 3
- Baðherbergi: 3
Lýsing
-
Lýsing:
Einbýlishús - Orlofsleiga - Campoamor
Fallegt einbýlishús til orlofsleigu í Campoamor. Húsið sem er á 2 hæðum, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Við innganginn í húsið er verönd og fallegur garður en einnig er yfirbyggð verönd út af eldhúsinu baka til, þar sem er góð aðstaða til að grilla og njóta góðrar máltíðar úti í sólinni. Húsið er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og barnalaug. Öryggiskerfi er í húsinu.
Staðsetningin er fín en stutt er í veitingastaði og bari en næsta matvöruverslun er í 5 mínútna akstursfjarlægð. Svæðið er rólegt og gott en þó stutt í meira líf fyrir þá sem leita að því. Ýmiskonar afþreying er í boði í nágrenninu og er næsta strönd í ca 15 mínútna göngurfæri. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Campoamor Golf, Villamartin Golf, Las Ramblas og Las Colinas. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í ca 10 mínútna akstursfjarlægð, en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu