Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Stórglæsileg og sannkölluð lúxus íbúð í Las Colinas. Eignin samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, opnu eldhúsi og stórri stofu/borðstofu. Í stofunni er útgengt á 55m2 svalir en þar er útsýnið stórglæsilegt yfir goflvöllinn. Íbúðin er staðsett í fyrsta flokks íbúðakjarna þar sem þú finnur allt sem þú þarft.
Las Colinas Golf er lokaður íbúðakjarni sem stendur aðeins afskekkt og er ósnert náttúran allt um kring. Á Las Colinas Golf er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu og íþróttir. Þar má nefna tennis, borðtennis og fullbúna líkamsrækt. Íbúar í Las Colinas Golf hafa aðgang að klúbbhúsi en stórglæsilegur 18 holu golfvöllur er á svæðinu þar sem náttúrufegurðin nýtur sín allt um kring og þar eru ýmsar gönguleiðir þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Draumaeign golfarans!
Sjá fulla lýsingu