Íbúð í Lomas de Cabo Roig - nr Royal Park Spa Resort Denys
Íbúð í Lomas de Cabo Roig - nr Royal Park Spa Resort DenysUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 5 dagar
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Lomas de Cabo Roig
Hugguleg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Lomas de Cabo Roig. Íbúðin sem er á 2 hæðum, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi + gestasnyrtingu, eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á 2 góðar verandir þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í snyrtilegum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug, nuddpotti, sauna og líkamsrækt.
Staðsetningin er góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hverfið er rólegt og gott, en þó stutt í meira líf og fjör fyrir þá sem leita að því. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Campoamor og Villamartin Golf. Sórt samfélag Íslendinga er á svæðinu og standa bæði Íslendingafélagið og Félag húseigenda á Spáni reglulega fyrir ýmsum hittingum og viðburðum.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu