Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Villamartin
Hugguleg íbúð til sölu í Green Hills, Villamartin. Íbúðin sem er 93m2, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa í norður. Íbúðin er staðsett í lyftuhúsi í góðum lokuðum kjarna, þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugum, líkamsrækt og leiksvæði fyrir börnin. Stæði fylgir íbúðinni í bílageymslu.
Staðsetningin er mjög góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Kjarninn er staðsettur í svokölluðu "kryddhverfi" sem er vinsælt á meðal Íslendinga. Ýmis konar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Ramblas og Las Colinas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu