Íbúð á Benidorm - no Veronica 2
Íbúð á Benidorm - no Veronica 2Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 vikur
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
- Stærð: 78 m²
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Benidorm
Virkilega hugguleg íbúð til orlofsleigu á Benidorm. Íbúðin er 78m2 og samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á rúmgóðar svalir þar sem tilvalið er að njóta góðrar máltíðar og baða sig í sólinni. Íbúðin er staðsett á 10.hæð í lyftuhúsi með góðum garði, þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og sauna. Bílastæði fylgir íbúðinni. Íbúðin er fullbúin fyrir 5 manns.
Staðsetningin er mjög góð en svæðið er mjög rólegt en þó stutt í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og er ströndin í göngufæri. Meðfram ströndinni má finna fjöldann allan af veitingastöðum og þar er allt iðandi af mannlífi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu