Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Punta Prima
Glæsileg penthouse íbúð á besta stað í Punta Prima. Íbúðin sem er 175m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er úr stofu á fínar svalir en einnig er glæsilegt og rúmgott sólþak þar sem er nuddpottur þaðan sem er glæsilegt útsýni, útisturta, útieldhús og nóg pláss til að baða sig í sólinni. Sjón er sögu ríkari! Loftkæling er í íbúðinni. Geymsla fylgir, sem og stæði í bílageymslu. Íbúðin er staðsett í góðum, lokuðum kjarna með sólarhringsvöktun. Þar hafa íbúar aðgang að sameiginlegum sundlaugum, líkamsrækt, paddle velli, fótbolta- og körfuboltavelli.
Staðsetningin er frábær en kjarninn er staðsettur alveg við sjóinn í Punta Prima. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin Golf og Campoamor Golf. Stórt samfélag Íslendinga er á svæðinu og standa Íslendingafélagið og Félag húseigenda á Spáni reglulega fyrir ýmsum hittingum og viðburðum.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!