Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Punta Prima
Einstaklega falleg íbúð til sölu í Punta Prima. Íbúðin sem er 139m2, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á stórar og góðar suður svalir með glæsilegu útsýni yfir sameiginlegan sundlaugagarð og sjóinn. Geymsla fylgir íbúðinni sem og stæði í bílageymslu. Íbúðin er á 9.hæð í góðum, lokuðum kjarna þar sem er sólarhrings öryggisvöktun. Íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugum og leiksvæði fyrir börnin.
Staðsetningin er frábær en kjarninn er staðsettur alveg við sjóinn í Punta Prima. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin Golf og Campoamor Golf. Stórt samfélag Íslendinga er á svæðinu og standa Íslendingafélagið og Félag húseigenda á Spáni reglulega fyrir ýmsum hittingum og viðburðum.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu