Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Campoamor
Hugguleg íbúð til sölu í Lomas de Campoamor. Íbúðin sem er á 3.hæð í lyftuhúsi, er 87m2 og samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á góðar svalir sem snúa í suður en einnig fylgir íbúðinni sólþak með fínu útsýni, þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og líkamsrækt.
Staðsetningin er góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. -Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Campoamor og Villamartin Golf. Svæðið er rólegt og gott en þó stutt í meira líf og fjör fyrir þá sem leita að því.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu