Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Einbýlishús - Til sölu - La Zenia
Gott einbýlishús til sölu á besta stað í La Zenia. Húsið sem er á 3 hæðum, samanstendur af 4 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Á jarðhæðinni eru baðherbergi, eldhús og stofa/borðstofa en þaðan er útgengt í lokaðan garð með einkasundlaug. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi, 1 baðherbergi og útgengt á svalir. Í kjallaranum eru stofa, eldhús, 2 svefnherbergi, 1 baðherbergi og sér inngangur. Húsið er staðsett í góðum, lokuðum kjarna með sameiginlegum sundlaugagarði.
Staðsetningin er frábær, en kjarninn er staðsettur rétt við Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina vinsælu. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og Campoamor Golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu