Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - La Regia
Huggulega ný uppgerð íbúð til sölu í La Regia hverfinu við Cabo Roig. Íbúðin sem er á efri hæð í 2ja hæða húsi, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, opnu eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á svalir og niður í stóran garð þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Á svölunum skín sólin á morgnana svo þar er gott að njóta með morgunbollann í blíðunni. Garðurinn er 92m2 og snýr hann þannig að sólin er þar seinni partinn.
Staðsetningin er mjög góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og til að mynda er félagsheimili Íslendingafélagsins í hverfinu en þar eru reglulega ýmsir hittingar og viðburðir á döfinni. Sutt er í næstu strönd og góðir golfvellir eru í næsta nágrenni.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu
Staður
Eiginleikar og Þægindi
- Eiginleikar: