Íbúð í San Miguel de Salinas - no Saoco Flamingo
Íbúð í San Miguel de Salinas - no Saoco FlamingoUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 3 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð, Þakíbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Vetrarleiga - Orlofsleiga - San Miguel de Salinas
Virkilega hugguleg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í San Miguel de Salinas. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, rúmgóðri stofu og fullbúnu eldhúsi. Útgengt er á svalir sem snúa út í sameiginlegan sundlaugagarð en einnig er rúmgott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar en þar er bæði aðstaða til að borða úti og baða sig í sólinni. Útisturta er á sólþakinu. Íbúðin er staðsett í góðum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og leiksvæði fyrir börnin.
Staðsetningin er góð, en kjarninn er staðsettur í útjaðri San Miguel de Salinas. Bærinn er lítill með tæplega 7000 íbúa og er staðsettur í ca 10-15 mínútna akstursfjarlægð suð-vestur af Torrevieja. Svæðið er rólegt og gott, en þó stutt í alla þjónustu. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Colinas og Las Ramblas.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu