Íbúð í Villamartin - no Villa Costa 25
Íbúð í Villamartin - no Villa Costa 25Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 4 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Villamartin
Glæsileg íbúð til orlofsleigu í Villamartin. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, rúmgóðri stofu/borðstofu og fullbúnu eldhúsi. Útgengt er á stóra verönd þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Íbúðin er staðsett í huggulegum kjarna, þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug. Loftkæling er í íbúðinni.
Staðsetningin er mjög góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Allt um kring má finna ýmiskonar afþreyingu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Villamartin Golf, Campoamor Golf, Las Colinas og Las Ramblas. Verslunarmiðstöðin vinsæla Zenia Boulevard er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð, en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu