Íbúð í Los Altos - no M Penthouse Roger
Íbúð í Los Altos - no M Penthouse RogerUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 7 mánuðir
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Los Altos
Lúxus þakíbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Los Altos. Íbúðin samanstendur af 2 rúmgóðum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, opnu eldhúsi og rúmgóðri stofu/borðstofu. Útgengt er á góðar svalir, bæði úr stofu og svefnherbergi en þaðan er svo stigi upp á stórt og gott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Svalirnar snúa út í fallegan garð með sameiginlegri sundlaug. Bílastæði fylgir íbúðinni í bílageymslu.
Staðsetningin er góð en í nágrenninu eru veitingastaðir/barir og í ca 10-15 mínútna göngufæri er matvöruverslun og apótek. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í ca 5 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Sundlaugabarinn vinsæli þar sem Íslendingar hittast alla föstudaga er í ca 15 mínútna göngufjarlægð. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu