Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - La Ciñuelica
Hugguleg íbúð til sölu í La Ciñuelica. Íbúðin sem er 93m2, samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á góðar 36m2 svalir, þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Bílastæði fylgir íbúðinn en hún er staðsett í lyftuhúsi. Íbúðin er staðsett í fallegum, lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að 3 sameiginlegum sundlaugum, líkamsrækt og leiksvæði fyrir börnin.
Staðsetningin er mjög góð, en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðar strendur eru í nágrenninu en ca 2 km eru í næstu strönd. Góðir golfvellir eru í nágrenninu, en þar má nefna Las Ramblas, Las Colinas, Campoamor Golf og Villamartin Golf. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er skammt undan en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu