Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Einbýlishús - Til sölu - Machico, Madeira
Einbýlishús til sölu í Machico, Madeira. Húsið sem er 135m2, samanstendur af 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, eldhúsi, þvottahúsi og stofu/borðstofu. Útisvæðið er stórt og gott eða samtals 100m2 og er útsýnið af veröndinni stórglæsilegt yfir bæinn og út að sjó. Bílastæði er við húsið eða ca 30m frá inngangnum.
Húsið er staðsett í borginni Machico, sem er ein af elstu borgunum á Madeira en borgin hefur upp á margt að bjóða varðandi menningu og sögu eins og fallegar kirkjur og aðrar byggingar. Í Machico finnur þú fallegar strendur, sérstaklega Praia de Machico, sem er ein af vinsælustu ströndunum á eyjunni. Praia de Machico er sandströnd og hefur góða aðstöðu fyrir bæði sund og sólbað. Um 40.000 íbúar eru í Machico og er öll þjónusta til staðar. Það tekur ca 20-30 mínútur að keyra til Funchal sem er höfuðborgin á Madeira.
ATH - Staðsetning á korti er ekki nákvæm en gefur aðeins mynd af því á hvaða svæði eignin er
Sjá fulla lýsinguVinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!