Íbúð í Santa Cruz, Madeira - no Santa Cruz
Íbúð í Santa Cruz, Madeira - no Santa CruzUpplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 1
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Madeira
Virkilega hugguleg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Santa Cruz, Madeira. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, fullbúnu eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á fínar svalir með sjávarútsýni. Íbúðinni fylgir bílastæði sem hentar vel fyrir þá sem kjósa að vera á bílaleigubíl.
Staðsetningin er mjög góð en íbúðin er staðsett í ca 10 mínútna akstursfjarlægð frá Santa Cruz þar sem öll þjónusta er eins og verslanir, veitingastaðir, pósthús, apótek og barir. Í Santa Cruz er Palmeiras ströndin þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Þarna er einnig markaður reglulega þar sem hægt er að versla ferskt fiskmeti, grænmeti og ávexti. Santa Cruz er á austurströnd Madeira og er í ca 18km akstursfjarlægð frá Ronaldo flugvellinum.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu