Íbúð í Aquamarina - no A-2405
Íbúð í Aquamarina - no A-2405Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 1 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Skammtímaleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 1
- Stærð: 71 m²
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Aquamarina - Vetrarleiga - Orlofsleiga
Hugguleg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í Aquamarina. Íbúðin sem er 71m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi, eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á fínar suður svalir. Íbúðin er staðsett í lyftuhúsi í góðum lokuðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að garði með sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er frábær en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Einnig er heilsugæsla og apótek skammt undan. La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin vinsæla er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna yfir 200 verslanir og veitingastaði. Ýmiskonar afþreying er í boði á svæðinu og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Góðir golfvellir eru í nágrenninu en þar má nefna Las Colinas, Las Ramblas, Campoamor og Villamartin golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu