OrlofsleigaÍbúðÍbúð til sölu í Playa Flamenca - no Calle Fenix

Íbúð til sölu í Playa Flamenca - no Calle Fenix

Íbúð til sölu í Playa Flamenca - no Calle Fenix
2 svefnherbergi
2 baðherbergi
169.995€

Upplýsingar

  • Bætt við: Fyrir 1 ár
  • Flokkur:
  • Tegund:
  • Svefnherbergi: 2
  • Baðherbergi: 2
  • Byggingarár: 2018

Lýsing

  • Lýsing:

    Íbúð - Til sölu - Orlofsleiga - Playa Flamenca

    Virkilega falleg íbúð til orlofsleigu á góðum stað í Playa Flamenca. Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Þegar komið er að húsinu er gengið upp stiga á læstar svalir og þaðan er farið inn í íbúðina. Gengið er inn í alrými þ.e. stofu/borðstofu og eldhús. Á hægri hönd eru svo 2 svefnherbergi, bæði með góðum innbyggðum skápum. Baðherbergi er inn af öðru herberginu en einnig er annað baðherbergi með þvottavélaaðstöðu og sturtu. Loft í baðherbergjum eru niðurtekin með innbyggðum Led ljósum. Inn af eldhúsinu er svo útgengt á lítinn pall en þaðan er hringstigi upp á mjög rúmgott sólþak þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Eldhúsið er með öllum nýjustu tækjum, tvöföldum Samsung ísskáp og öllu leirtaui. Loftkæling er í íbúðinni.

    Íbúðin er staðsett í virkilega snyrtilegum lokuðum kjarna en hægt er að aka inn í kjarnann á 2 stöðum inn um rafmagnshlið. Bílastæði eru innan kjarnans og íbúar hafa einnig aðgang að sameiginlegri sundlaug. Staðsetningin er góð en stutt er alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Sundlaugabarinn vinsæli þar sem íslendingar hittast alla föstudaga er í aðeins 10 mínútna göngufæri. Ýmiskonar afþreying er í boði allt um kring og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

    Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!

     

     

    Sjá fulla lýsingu

Staður

Eiginleikar og Þægindi

Share this property

Copy

Eða deila með:

Powered by Estatik

Reset password

Enter your email address and we will send you a link to change your password.

Get started with your account

to save your favourite homes and more

Get started with your account

to save your favourite homes and more

By clicking the «SIGN UP» button you agree to the Terms of Use and Privacy Policy
Powered by Estatik