Íbúð í Las Colinas Golf - no AL134
Íbúð í Las Colinas Golf - no AL134Upplýsingar
- Bætt við: Fyrir 2 ár
- Flokkur: Orlofsleiga, Vetrarleiga
- Tegund: Íbúð
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 2
- Stærð: 93 m²
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Orlofsleiga - Vetrarleiga - Las Colinas Golf
Glæsileg íbúð til orlofs- eða vetrarleigu í lúxuskjarna í Las Colinas. Íbúðin sem er 93m2 samanstendur af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Íbúðin er björt og falleg en úr stofunni er útgengt á góða verönd og garð þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar. Þar eru góð sólhúsgögn, bæði sófi, sólbekkir, borð og stólar. Íbúðin er virkilega hugguleg en vel er hugað að öllum smáatriðum. Loftkæling er í íbúðinni. Íbúðin er staðsett í lúxus kjarnanum Las Colinas Golf, þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugum, íþróttavöllum og veitingastað. Að ógleymdum golfvellinum sem er virkilega flottur.
Staðsetningin er góð en Las Colinas er staðsett í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá Orihuela Costa þar sem finna má alla þjónustu. Þar eru verslanir, veitingastaðir og barir og ýmiskonar afþreying en allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu