Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Raðhús - Til sölu - Los Balcones
Raðhús til sölu í Los Balcones sem er úthverfi í Torrevieja. Húsið sem er 68m2 samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, rúmgóðu eldhúsi og stofu. Útgengt er á sólríka verönd. Útisvæðið er mjög stórt en það er samtals 400m2 en bílskúr er einnig við húsið. Lóðin er að miklu leyti ófrágengin en býður upp á ýmsa möguleika.
Íbúðin er staðsett í nokkurra mínútna fjarlægð frá miðbæ Torrevieja. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Góðar strendur eru á svæðinu en þar má nefna La Mata, Playa Flamenca, La Zenia og Cabo Roig. Skammt undan eru verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia Boulevard þar sem má finna fjölda verslana og veitingastaða. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni og ýmiskonar önnur afþreying og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu