Upplýsingar
Lýsing
-
Lýsing:
Íbúð - Til sölu - Punta Prima
Rúmgóð íbúð til sölu við sjóinn í Punta Prima. Íbúðin sem er 132m2 samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, elhúsi og stofu/borðstofu. Úr stofunni er útgengt á 14m2 svalir. Íbúðin er staðsett í mjög góðum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að 3 sameiginlegum sundlaugum. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni sem og geymsla.
Staðsetningin er góð en Punta Prima er vinsælt svæði. Stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmisskonar afþreying er í boði allt um kring og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Íbúðakjarninn er í göngufæri við góðar strendur en þar má nefna Punta Prima, Cala Piteras, og Playa Flamenca. Aðeins nokkurra mínútna akstur er í góða 18 holu golfvelli en þar má nefna Las Ramblas, Las Colinas, Villamartin og Campoamor golf.
Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
Sjá fulla lýsingu