Íbúð í Punta Prima - no RS2609

Íbúð í Punta Prima - no RS2609
3 svefnherbergi
2 baðherbergi

Upplýsingar

  • Bætt við: Fyrir 2 ár
  • Flokkur:
  • Tegund:
  • Svefnherbergi: 3
  • Baðherbergi: 2

Lýsing

  • Lýsing:

    Íbúð - Orlofsleiga - Punta Prima

    Glæsileg íbúð til orlofsleigu í Punta Prima. Íbúðin samanstendur af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, fullbúnu eldhúsi og stofu/borðstofu. Úr eldhúsi er útgengt á yfirbyggðar svalir þar sem er þvottaaðstaða og einnig huggulegt horn með sófa þar sem notalegt er að njóta með kaffibollann á morgnana. Úr stofunni er einnig útgengt á stærri svalir með virkilega fallegu útsýni yfir sameiginlegan sundlaugagarð og að sjónum. Filterar eru á vatni í eldhúsi svo hægt er að nota vatnið beint úr krananum. Íbúðin er staðsett í virkilega fallegum kjarna þar sem íbúar hafa aðgang að sameiginlegum sundlaugum og einnig fylgir íbúðinni stæði í bílageymslu.

    Staðsetningin er mjög góð en stutt er í alla þjónustu eins og verslanir, veitingastaði og bari. Ýmiskonar afþreying er í næsta nágrenni og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Stórt samfélag íslendinga er á svæðinu og eru ýmiskonar viðburðir og hittingar á þeirra vegum í boði fyrir þá sem hafa áhuga á því. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni en þar má nefna Villamartin, Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas.
    Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar á [email protected] eða í síma 888-9400 og við svörum um hæl - Sólarmegin í lífinu!
    Sjá fulla lýsingu

Staður

Share this property

Copy

Eða deila með:

Powered by Estatik

Reset password

Enter your email address and we will send you a link to change your password.

Get started with your account

to save your favourite homes and more

Get started with your account

to save your favourite homes and more

By clicking the «SIGN UP» button you agree to the Terms of Use and Privacy Policy
Powered by Estatik